. - Hausmynd

.

Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Foreldrafundur

Foreldrafundur fyrir komandi utanlandsferðar verður haldin í A-sal uppi á morgun þriðjudag kl 19.30.

Þá verður kostnaður vegna ferðar komin í ljós og allir fá að sjá á EXEL hvað þær eru búnar að safna í ferðinaSmile

 

Kv Stjórnin


Reglur um ferðir erlendis á vegum Keflavíkur.

Kæru foreldrar að undanförnu hefur verið unnið að reglum fyrir ferðir erlendis og safnanir, endilega lesið.
Að gefnu tilefni hefur Keflavík íþrótta og ungmennafélag sett reglur um safnanir og ferðir á vegum Keflavíkur

Reglur um fjáraflanir/safnanir í nafni Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags.

1. Tilgangur fjáraflana/safnana í nafni Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags skal ávalt vera skýr og söfnunarfé ráðstafað í samræmi við tilefnið.

2. Allir þeir aðilar sem hyggjast hefja fjáraflanir/safnanir í nafni félagsins skulu leita heimildar aðalstjórnar Keflavíkur til að mega safna fé í nafni félagsins.

3. Óheimilt er að safna fé til einkaneyslu í nafni félagsins. Til einkaneyslu telst öll önnur neysla en sem til er stofnað vegna verkefna og viðburða á vegum félagsins.

4. Foreldraráð eða aðrir þeir sem stjórna söfnun skulu setja reglur um skiptingu söfnunarfjár milli einstaklinga í upphafi söfnunar enda hafi þær verið kynntar, ræddar og samþykktar af þeim sem að söfnuninni standa og í samræmi við reglur félagsins.

5. Nú hefur einstaklingur safnað fé sem sérstaklega er merkt honum en verður af óviðráðanlegum sökum að hætta við þátttöku í verkefninu sem fénu var ætlað. Skal það fé sem viðkomandi hefur safnað í nafni félagsins sett í sameiginlegan sjóð verkefnisins. Hafi verið greitt inn fé í verkefnið án söfnunar vegna einstaklingsins þá skal það fé endurgreitt til viðkomandi.

6. Stjórn Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags úrskurðar um öll ágreiningsmál sem upp kunna að koma í tengslum við safnanir á vegum félagsins og getur sett nánari reglur um þær og veitt undanþágur ef slíkt telst nauðsynlegt.
Aðalstjórn Keflavíkur.


Sjoppa um helgina

Sæl öll, við verðum með tvær sjoppur um helgina. En þar sem stelpurnar okkar eru að keppa sjálfar í Heiðarskóla er ætlast til að foreldrar taki vaktirnar þeirra.

Toyotahöllin Laugardagur 26.mars

9.30-12.00 Elínora

12.00-14.30 Ellen

Heiðarskóli Laugardagur 26.mars 

10.00-12.30 Rúna

12.30-15.30 Birta

Toyotahöllin Sunnudagur 27.mars 

9.30-12.00 Ólöf Rún

12.00-14.30 Helena

Heiðarskóli Sunnudagur 27.mars 

9.30-12.30 Kristún 

12.30-15.30 Laufey

 

 

 


Kvennakvöld GS

Sælar mæður, mig langaði að láta ykkur vita af kvennakvöldi GS sem verður næstkomandi föstudag 25.mars í golfskálanum í Leiru. Miðaverð er 3.500 kr og það er sjávaréttahlaðborð og happadrætti.
Gaman væri ef við færum allar saman og hefðum gaman eins og eina kvöldstund áður en stelpurnar okkar fara að keppa um helgina. Hvernig hljómar þetta, endilega látið í ykkur heyra.
Kv Íris Dögg

SOKKAR

Þið sem hafið ennþá pening heima frá Keflavíkur-sokkum, verðið að koma með peningin til mín í dag. Er að gera upp við sokkaverksmiðuna. Ef peningurinn er ekki komin til mín í dag verður þetta tekið af sjóðnum ykkar.Kv Íris Dögg

PEYSUR

Það verða peysur til sölu fyrir alla yngri flokka kvk í Keflavík (5.bekkur og upp)

Ætlast er til að þær séu notaðar sem upphitunar peysur. Kveikjan af þessu er sú: Þegar að bikarhelgin var fyrir stuttu átti Keflavík stúlkur í úrslitum í öllum flokkum kvenna og okkur varð ljóst að ekkert heildar útlit var á stelpunum okkar. Þannig að þessi hugmynd kom upp hjá okkur foreldrum að bjóða peysur til sölu fyrir allar stúlkurnar.

Það verður mátun á morgun miðvikudag í A-sal (uppi) frá kl 18.00-20.00

Verðið er 3.000 kr fyrir peysu með merkingu þ.e K-merkið framan á, niður með erminni verður skrifað Keflavík og aftan á verður nafn viðkomandi:)

Vonum að sem flestir taki vel í þessa hugmynd okkar og kaupi sér peysu:)


Sjoppur þessa helgi

Við erum með sjoppur núna um helgina ef þið komist ekki á tíma sem þið eruð settar á endilega skiptið við hvor aðra:)  svona er vinnan:

11.mars föstudagur Heiðarskóli : Sara 17.00-19.00 og Sandra 19.00-21.00 (ég kem í dag með vörur í sjoppuna, þegar þið lokið fáið þið að setja vörurnar í kæli hjá húsverðinum)(skiptimyntina farið þið með heim til Ólafar Rúnar eftir lokun)

12.mars laugardagur Heiðarskóli: Ólöf 10.00-12.00 ----Helena 12.00-14.00----Laufey og Kristún 14.00-16.00 (Systa, vörurnar ættu að vera í kæli hjá húsverði frá kvöldinu áður, Sandra ætti að koma peningum heim til þín kvöldið áður)(Laufey þú mátt svo fara með peningin heim til Brietar eftir lokun)

13.mars sunnudagur Heiðarskóli: Briet 10.00-13.00 og Ellen 13.00-16.00 (Laufey kemur með peningin til Brietar á laugardaginn)(Ellen kemur svo með allt úr sjoppu til mín, lokar og gengur frá) 

13.mars sunnudagur A-Salur: Birta 10.00-12.30----Elínora 11.30-14.00 og Rúna 12.30-15.00

Ég verð með símann á mér ef eitthvað vantar allan tímann: 692-4050 kv Íris Dögg


SJOPPA UM HELGINA

Sæl öll, við munum hafa sjoppur um helgina. Já sjoppur, við munum vera í Heiðarskóla á laugardag og svo í A-sal á sunnudag.

Nánari upplýsingar og vinnutímar á morgun föstudag:)


Nettó mótið

ÉG vil þakka öllum þeim sem mættu og hjálpuðu til um helgina fyrir gott samstarf. Þetta gekk vel og þið sem mættuð fáið stórt hrós:)

Næsta síða »

Höfundur

Jón Guðmundsson
Jón Guðmundsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband